Öflugt þjónustufyrirtæki í sjávarútvegi
R. Sigmundsson og Vélasalan voru bæði stofnuð árið 1940.
R. Sigmundsson sérhæfði sig í sölu á siglinga- og fiskileitartækjum sem og fjarskiptatækjum fyrir skip.
Vélasalan sérhæfði sig aftur á móti í innflutningi og sölu á vélum í skip og fjölmörgum annarskonar búnaði fyrir fiskiskip, sem og skemmtibátum og flestu því sem þeim tilheyrir
Með sameiningunni getur Vélasalan ehf nú boðið uppá heildarlausnir fyrir sjávarútveginn.
Vélasalan þjónustar einnig verkstæði og verktaka með bílalyftur, dælur, síur og rafstöðvar svo dæmi séu nefnd.
Aðaláhersla okkar er sú að bjóða heildarlausnir í sjávarútvegi þannig að viðskiptavinurinn geti fengið allt á einum stað. Söludeildin er eitt svið ; Sölusvið atvinnuvegir. Í söludeildinni starfa menn með áralanga reynslu. Einn helsti styrkur Vélasölunnar er mannauðurinn sem þar er.
Öll starfsemi Vélasölunnar er að Klettagörðum 25, Verslun, rafeindaverkstæði og vélaverkstæði.
Opnunartímar:
Verslun: mánud - föstud: 9-17
Verkstæði: mánud - föstud: 8-16
Inngangur bakatil: mánud - föstud: 8-9
Skrifstofa og skiptiborð: mánud - föstud: 9-17
Gjaldskyldur neyðarsími eftir lokun:
863-0014